Um Bisou.is

Ósjaldan finnur maður sig í algjörri afslöppun heima fyrir, eftir viðburðarríkan dag, eftir vinnu eða annað. Börnin mögulega loksins sofnuð og "ég-tíminn" hefst! - Búðir eru því miður lokaðar, reyndar nennir maður tæplega út hvort eð er. Frítíminn er jú helst á kvöldin og því hentugt að geta heimsótt vefverslun og skoðað sig um eftir hverju því sem áhugi er á í það skiptið, hvort sem það eru innanhúsmunir, föt, snyrtivörur eða annað.

Við vitum hvernig þér líður!
Þess vegna sköpuðum við Bisou, lífstílsbúð fyrir konur með allt á einum stað. "Ég tíminn" hefur aldrei verið betri..

 

Upplýsingar um seljanda:

Bisou, hluti af Petit Ehf. kt: 560115-0750  VSK-númer 119203, Ármúli 23 ,108 Reykjavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu á lífstíls vörum.

 

Greitt á netinu:

Hægt er að greiða með Visa-og Mastercard. Greiðslan er hröð og örugg í gegnum Pay card, einnig er hægt að greiða í gegnum Netgíró, þeirra skilmála má finna á Netgiro.is. Athugið þó sérstaklega að ekki er hægt að greiða með Netgíró í verslun heldur eingöngu í vefverslun.

 

Afhending:

Hægt er að fá vöruna senda heim með pósti. Pakkar undir 2kg. að þyngd í venjulegri stærð eru sendir í B pósti.

Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 2-4 virkir dagar, fyrir vöru merkta „til afgreiðslu af lager“.

Kaupandi á rétt á að hætta við pöntun ef tafir verða á afgreiðslu til okkar. Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.

Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar við afgreiðum vöruna frá okkur.

 

Upplýsingar viðskiptavina:

Við pöntun fyllir kaupandi út upplýsingar s.s.nafn, tölvupóstfang og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandinn að þessar upplýsingar fari í viðskiptavinagagnagrunn okkar. Bisou.is ábyrgist að farið sé með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál og þær verði ekki látnar öðrum í té.

 

Útsölur og vöruskil:

Skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

 

Vöruskil:

Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá pöntun. Kaupandi getur afturkallað pöntun sér að kostnaðarlausu ef tafir verða á afgreiðslu. Ef varan uppfyllir ekki væntingar kaupanda varðandi gæði eða lit getur kaupandi skilað vörunni innan 14 daga, varan þarf að vera ónotuð, með öllum merkjum og í upphaflegri pakkningu. Við endurgreiðum vöruna innan 10 daga frá því að við fáum hana í hendur. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. Vinsamlega sendið tölvupóst á netfangið Bisou(at)Bisou.is áður en vöru er skilað.

 

Inneignarnótur:

Við vöruskil á viðskiptavinur rétt á að fá afhenta inneignarnótu ef ný vara er ekki tekin upp í þá vöru sem skilað er.
 

Kvartanir:

Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum leyst málið í sameiningu. Sé gallaðri vöru skilað fæst sendingarkostnaður endurgreiddur. Það er okkur mikilvægt að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og því hvetjum við viðskiptavini okkar til að hafa samband telji þeir að vara eða þjónusta hafi verið ófullnægjandi.

 

Aðrar spurningar:

Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband.

Sendu tölvupóst á Bisou(at)Bisou.is eða hafðu samband í síma 779-5513 á milli kl. 11-18 virka daga.